Kennsluáætlun Vetur 2026

Lagt er upp með þessu skipulagi en dögum er víxlað með tilliti til veðurs ef þarf eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum.

Vika 1 - Vinna við hendi og „klikker“

Nemendur læra að vinna með hest í hendi; það þýðir að þjálfa hest frá jörðu. Þeir kynnast þjálfunarbúnaði sem oft er notaður við þessa vinnu og læra að láta hestinn gera nokkrar æfingar. Kynning á „klikker“ þjálfun og grunnur lagður að æfingu sem heitir Spænska sporið.

Vika 2 - „Klikker“ þjálfun og gangtegundir

Áframhald af vinnu með hest frá jörðu. Unnið nánar með klikker þjálfun, opnum möguleika á að kenna hestunum fleiri æfingar eða „trikk“ með þeirri aðferð.

Fræðsla um gangtegundirnar 5. Æfingar í að greina þeirra á milli. Leikjamiðað nám.

Vika 3 - Leggja á/við, fara á/af baki

Farið nákvæmlega i það hvernig eigi að leggja við (beisla) og leggja á (setja hnakk). Markmið nemenda er að verða mjög góð í þessu án vandræða til að verða sjálfstæð í hestamennskunni. Leikjamiðað nám.

Nemendur æfa sig að fara á og af baki með æfingabúnaði og svo hesti. Kennslan snýst um tækni sem truflar hestinn sem minnst og gerir þetta sem auðveldast fyrir knapa og hest.

Vika 4 - Ásetuæfingar / Smalabraut

Unnið er með þrjár stöðvar í þessarri kennslustund. Smalabraut í einu gerði þar sem nemendur spreyta sig að ríða ýmsar reiðleiðir og leysa ákveðin verkefni. Önnur stöð eru umhirðu verkefni; gera gjafir klárar, moka, hirða um hesthúsið, gefa vítamín og fóðurbæti. Þriðja stöðin eru ásetuæfingar i hringtaum hjá kennara. Unnið með jafnvægi á þremur gangtegundum.

Vika 5 - Leggja á/við, smalabraut, útreiðar

Síðustu tveir tímarnir eru eins þar sem nemendur halda áfram með verkefnið að leggja á og við án vandræða og af sjálfstæði. Allur hópurinn fer í smalabraut inni í gerðum að leysa ýmis verkefni og reiðleiðir.

Siðustu 20 mínútur tímans nýta 2 nemendur til að hirða um hesthúsið meðan 2 fara í reiðtúr með kennara. Þessu er svo víxlað í seinni tímanum svo allir fara í hvoru tveggja.

Vika 6 - Leggja á/við, smalabraut, útreiðar

Eins og vika 5 nema þeir nemendur sem fóru í reiðtúr síðast, hirða um hesthúsið og öfugt.