Námskeiðin okkar
Tilbúin/n að kynnast hestamennsku fyrir alvöru? Heyrðu í okkur og skoðaðu námskeiðin í boði. Töltu inn í hestaheiminn með leik, gleði og fræðsluþorstann að vopni!
Börn vetrarstarf
Vetur 2026-2027: Sept-okt / okt-des / jan-feb /mars-1. maí
vetrarnámskeið (6 skipti hvert námskeið)
Reiðskólinn skaffar hesta og öll reiðtygi, hjálma og öryggisvesti.
Fyrsta námskeiðs vetrarins hefst í vikunni 7.-11. sept og enda 13.-16. október 2026.
Staðsetning: Hesthús Stakkholts Dufþaksbraut og reiðhöllinni Skeiðvangi Hvolsvelli (reiðkennari sækir og skutlar nemendum milli þorps og hallar)
Grunnskólanemendur í 3.-10. bekk.
ISK 35.000,-
Í samstarfi við Hestamannafélagið Geysi.
Skráning fer fram á Abler (opnar á næstu dögum). Allir nemendur verða sjálfkrafa meðlimir í Hestamannafélaginu en greiða engin félagsgjöld fyrir 18 ára aldur.
Fullorðnir, einka- og paratímar
Í boði á ákveðnum tímabilum
Paratimi ISK 20.000,- (60 mínútur fyrir 2)
Einkatími ISK 15.000,- (60 mínútur fyrir 1)
Paratími er eins og einkatími fyrir tvo nemendur. Innifalið er kennsla i hestamennsku og reiðkennsla. Kennslan er miðuð að þörfum, áhuga, þori og reynslu hvers og eins nemanda. Innifalið er kennsla í hesthúsi, gerði og útreiðum, hestur til kennslunnar, öll reiðtygi og hjálmur.
Nemendur þurfa að vera slysatryggðir í frístundum á eigin vegum, t.d. með heimilistryggingu.
Dagsetningar lausar í páskafríi
Sumarnámskeið 2026
Ein vika, mán-fim (4d) frá 09:00 til 13:00
Fyrir börn fædd 2010-2017
Staðsetning: Miðkriki Hvolsvelli
Tvær vikur í boði:
1.-4. júní kl. 09:00-13:00
8.-11. júní kl. 09:00-13:00
ISK 37.000 á barn, innifalið:
Hestar, reiðtygi, kaffitími, hjálmur og vesti
Skráning inni á Abler hjá Hestamannafélaginu Geysi
Ef lágmarksþátttaka næst ekki í hóp verður reynt að sameina og vikur geta fallið niður
Námskeiðið er fyrir öll börn fædd 2010-2017, hvort sem þeir hafa tekið þátt í námskeiðum Geysis áður eður ei. Vikan er námskeið í hestamennsku svo börnin taka þátt í öllu sem snýr að því að taka hest og þjálfa á sumartíma. Við sækjum hestana út á beit, kembum, förum yfir hestana, leggjum við og á, förum á bak og fræðumst um ýmsa þætti tengt hestum. Nemendur koma með hádegismat í nesti til að setjast niður í spjall og mat í lok dags. Við tökum einnig morgun-kaffitíma saman í boði Stakkholts.
Börn - 1. maí 2sýning Æskulýðsnefndar Geysis
Apríl sýningarnámskeið (7+1 skipti)
Endar á sýningu 1. maí
Staðsetningar:
Hesthús Stakkholts Dufþaksbraut
Reiðhöllin Skeiðvellir Hvolsvelli
Reiðhöllin Rangárbökkum Hellu
Fyir nemendur sem hafa verið á námskeiði Stakkholts áður
Verð: ISK 35.000,- á barn
Í samstarfi við Hestamannafélagið Geysi.
Skráning fer fram á Abler og opnar fyrir skráningar mánudaginn 13. apríl.