1. maí sýning 2026 - lokanámskeið

Skráning á Abler - ISK 35.000 á barn

Við ætlum í ár að vera öll saman í einu atriði! Við setjum upp okkar útgáfu og túlkun á sögunni um grísina þrjá og úlfinn sem „másir og blæs“ !

Námskeiðið samanstendur af 7 skiptum á tveimur vikum til undirbúnings á sýningaratriði 1. maí sýningarinnar sem haldin verður í reiðhöllinni á Hellu. Allir nemendur mæta eins mörg skipti og þeir geta, en tímarnir eru ýmist 1 klst eða 2 klst, eins og opið hús með verkefnastöðvum. Námskeiðið snýst um að þjálfa hestana fyrir atriðið, gera þá fína og í búningum, undirbúa og búa til leikmuni, æfa hlutverk, sinna verkum hesthússins og njóta tímans saman. 

Ath! mögulega verða einhverjar tilfærslur á staðsetningu og tíma í takt við æfingar í reiðhöllum síðari vikuna.

  • Mán 20/04 - 2 klst 14-16

  • Þri 21/04 - 1 klst 15-16

  • Mið 22/04 - 2 klst 14-16

  • Mán 27/04 - 1 klst 15-16

  • Þri 28/04 - 1 klst 15-16

  • Mið 29/04 - 2 klst 14-16

  • Fim 30/04 - 2,5 klst 13:30-16